Fimmtudaginn 14. janúar 2021 var haldinn hátíðarfundur Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands í Fjölheimum á Selfossi. Að þessu sinni voru aðeins 10 manns viðstaddir vegna sólttvarnaraðgerða en fundinum var jafnframt streymt á netinu og fylgdist á fjórða tug með honum með þeim hætti. Eins og áður heiðraði forseti lýðveldisins, Guðni Th. Jóhannesson, samkomuna með nærveru sinni.
Að þessu skiptist styrkur sjóðsins milli þriggja styrkþega:
Benedikt Traustason, en hann vinnur að meistararitgerð í líffræði við Háskóla Íslands. Verkefnið nefnist Vistfræði birkis á Suðurlandi og takmarkandi þættir fyrir landnám þess. Samhliða loftslagsbreytingum hefur sjálfgræðsla birkis aukist en verkefni Benedikts miðar m.a. að því að afla skilnings á því hvaða staðbundnu aðstæður liðka fyrir eða hamla viðgangi og landnámi birkis á Suðurlandi.
Catherine R. Gallagher, en hún vinnur að doktorsverkefni í jarðfræði við Háskóla Íslands. Verkefnið nefnist Characterising ice-magma interactions during a shallow subglacial fissure eruption: northern Laki, a case study. Rannsóknin fjallar um samspil íss og kviku í sprungugosi undir þunnri jökulhettu og nýtir sér Skaftáreldana 1783-84 sem vettvangsdæmi. Skilningur á eldvirkni við fyrrnefndar aðstæður er mikilvægur þar sem jöklar hörfa nú æ meir.
Maite Cerezo, en hún vinnur að doktorsverkefni í líffræði við Háskóla Íslands. Verkefnið nefnist Tengsl varpþéttleika, atferlis og stofnstjórnunar hjá spóa. Ein birtingarmynd hnignandi líffjölbreytni er mikil fækkun farfugla, og vega þar þungt eyðing búsvæða af mannavöldum auk loftslagsbreytinga. Sunnlendingar bera ábyrgð á stórum hluta heimsstofns spóans og er þess vænst að rannsóknin geti stutt við vernd spóastofnsins og skyldra tegunda.
Sjö starfsmenn Reykjagarðs hlutu Fagbréf atvinnulífsins
Fræðslunetið afhenti í dag sjö starfsmönnum Reykjagarðs Fagbréf atvinnulífsins fyrir starfsfólk í matvælaiðnaði.
Fagbréfið er formleg viðurkenning á þeirri þekkingu, færni og hæfni sem starfsfólk hefur byggt upp í gegnum störf sín. Færnin var metin með raunfærnimati út frá hæfniviðmiðum starfsins.
Við óskum starfsmönnunum innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga 👏
Einnig er ánægjulegt að sjá stjórnendur Reykjagarðs styðja starfsfólk sitt í starfsþróun og hvetja það áfram.
Fræðslunetið aðstoðar fyrirtæki við framkvæmd raunfærnimats og útgáfu Fagbréfa atvinnulífsins. ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Vinnur þú með börnum?
Styrktu þig í starfi með hagnýtu námi.
Skráðu þig núna👇
fraedslunetid.is/leikskolaida-studningsfulltruabru/ ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Kláraðir þú ekki framhaldsskóla?
Menntastoðir eru góð byrjun
Skráðu þig núna👇
fraedslunetid.is/menntastodir/ ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Autumn registration is now open.
Learn practical Icelandic for daily life.
Find a course near you👇
fraedslunetid.is/islenska-fyrir-utlendinga-2/ ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Skráning í haustnám er hafin ✨
Veldu nám sem styrkir þig í starfi og lífi – á þínum forsendum.
👉 Skoða námsleiðir
fraedslunetid.is ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Við verðum á staðnum og tökum þátt í þessum skemmtilega viðburði. ... See MoreSee Less
Þetta efni er ekki í boði sem stendur
Þetta gerist yfirleitt vegna þess að eigandinn deildi innlegginu einungis með takmörkuðum hópi fólks, breytti hver getur séð innleggið eða því hefur verið eytt.0 CommentsComment on Facebook